14apríl

Komin aftur?!

Heyj Heyj Heyj..!

I'm Back, eða svona nokkurn vegin. Ég veit að ég er ekki búin að blogga hérna mjög lengi enn þannig er þetta búið að vera að ég er ekki með net heima í bænum þannig að þegar ég kemst á net þá er ég í hveragerði hjá mömmu og þá er ég mjög lítið að pæla í að blogga, ég bloggar yfirleitt bara á pineapples síðunni þótt að það sé ekki einusinni það oft. Ég hef nú voðalega lítið að segja, ég held að allir halda líka að þessi síða sé bara löngu komin undir jörð og leggstein en það virðist nú ekki vera svo slæmt enþá. Ég er byrjuð aftur í skólanum efit skemmtilegt páskafrí, ég var í vík í mýrdal og það var geggjað =) Ég skemmti mér konunglega með honum Þorgilsi Frænda og svo kinntist náttúrulega krökkonum þarna í víkinni og verð nú að segja að þau kunna svo sannarlega að skemmt sér =) ég held að ég sé að reyan að segja að þau er frábær þarna fyrir austan og ætla að heimsækja þau oftar.

Ég veit ekki hvað ég skal segja meira, ætla það sé ekki ástæðan fyrir því að ég er ekkert búin að vera að blogga, hmm. speki...! en ég held að það sé komið nóg í bili.

Later Gator

-Bryndís

14. apríl 2007 klukkan 01:58
Bryndís Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
24janúar

á morgun.

Á morgun verður fimmtudagur!
Á morgun verða 2 vikur og 4 dagar liðnir síðan skólinn byrjaði aftur!
Á morgun verða 25 dagar liðnir af nýja árinu 2007!
Á morgun verður einn dagur í 26 janúar!
Á morgun verður 25 janúar!
Á morgun verða 18 ár síðan ég fæddist!
Á morgun morgun á ég afmæli!
Á morgun verð ég 18 ára!
Á morgun verð ég fjárráða!
Á morgun verður fagur dagur!

Ég vildi bara svona deila þessu með ykkur enn já það er satt ég á afmæli á morgun. Stór dagur fyrir mér. =) Jeijj Enn ég hef nú samt voða lítið annað að segja nema þetta.
24. janúar 2007 klukkan 18:04
Bryndís Guðjónsdóttir
12 athugasemdir
10janúar

í Skólanum..!

Ég er stödd í skólanum eins og er, í tölvustofunni í gati nánartiltekið. Ég er ekki að skrópa eða eitthvað þannig sem þið gátið verið að hugsa. Ég er búin að koma mér fyrir heima og búin að drasla allt til =) ójeijj líður eins og heim og ég er sko að tala um bara í herberginu mínu sem er drasl allt annað er spikk & span, eða svona nokkurnvegin. Í gær kláraði ég fyrstu seríu af Roswell (þættir sem ég keypti mér úti) og ég er að verða brjáluð, ég get ekki beðið eftir að sjá það sem gerist næst enn ég náði að róa mig niður með því að horfa á Grey´s Anatomy fyrstu seríu náði næstum að klára hana alla, ég er að verða sjúk manneskja. Ég ligg uppí rúmmi í allan dag og horfi á sjónvarp :S I need help. Hver býður sig fram? bjóða mér kannski eitthvað út?

Það eru 15 dagar þangað til að ég verð 18 ára. 18, þetta er nokkuð stór tala eða fyrir mér allavega þá meina ég að þetta er svo merkilegur aldur maður er bara orðin sjálfráða og allt verður svo minna. Enn allavega ég veit ekkert hvernig þetta verður, ég hef aldrei orðið 18 áður, svolítið nýtt fyrir mér og ætli það verði ekki bara að koma í ljós.

Klöguskjóður, persónur sem ég þoli ekki, þótt að það sé ekki nema eitthvað lítið þá fer það samt í taugarnar á mér. Manneskja fer og klagar eða segir frá einhverju í stað þess að tala við manneskjuna sem hún er að klaga útí. Og það fer meira í taugarnar á mér þegar manneskja gerir eitthvað smátt og verður "skammaður" fyrir það þótt að manneskjan sem að klagaði hafi verið að gera það sama. Ég er svo alveg viss um það að þessi klögu skjóða áttar sig ekki á þvi að hann/hún er að gera það nákvamlega það sama og meinesja er það verra, enn ekki er ég að opna á mér kjaftinn, ónei. Ég þoli ekki svona fólki!

Nó af mér að blaðra um það sem pirrar mig. Ég er búin að tjá mig veriði sæl =)

-Bryndís

10. janúar 2007 klukkan 18:14
Bryndís Guðjónsdóttir
3 athugasemdir
07janúar

Las Palmas

Eins og flestir kannski vita þá var ég í útlöndum yfir jólaafríið ég var á stað sem heitir Las Palmas sem er í Kanarí, ég ætla nú ekki að segja allt sem gerðist í ferðinni því það væri bara leiðinlegt bæði fyrir mig og ykkur sem eru að lesa enn jæja það helsta sem gerðist í ferðinni var:

 

- Ég fór í fyrsta skiptið á strönd og það var í Porte Ríkó og fyrir algjöri tilviljun hitti ég hana Maríönnu, einhver sem ég var ekki að búast við að hitta en það gerðist og ég var náttúrlega mjög ánægð að sjá hana og eyddum við restinni af deginum saman =) Takk Maríanna fyrir það. :*

 

- Jólin voru mjög fín fyrst var farið á ströndina síðan heim í sturtu og étið

 

- Ég sá að að var hægt að kaupa kanínu í súpermarkaðnum til þess að matræða enn ég fékk því miður ekki tækifærði til þess að smakka á henni.

 

- Farið var til Marrakó (27-29des) nánar tiltekið El Aayun, þar voru eyddir tveir dagar og það var nú bara fínt, ég fékk að tala smá af frönskunni það var ágætt að geta notað það sem maður kann =) ég og Lindu notuðum tíman með því að fara uppá þak og sleikja sólina sem var ágætt. Einnig var horft nóg af sjónvarpi nánar tiltekið NCIS fyrsta sería. Notuðum tækifærði því að ekkert sjónvarp var til staðar í Las Palmas.

 

- Áramótin voru nú mjög fín, byrjað var að fara á El Macaroni sem er veitingarstaður og voru nú nóg af sætum þjónum til staðar. Linda fékk nú nóg af athykli frá þeim öllum. Teiknað hjarta á sérvéttu og eitthvað það var mjööög fyndið =). Þegar árið 2007 skall á vorum ég og Linda inná kvennaklósetti :’) eitt af því skondasta úr ferðinni að vera á klósetti þegar flestir voru að óska hvort öðrum gleðilegs nýtt ár. Enn þegar við fórum út vorum við fagnaðar af sætum þjónum sem óskuðu okkur gleðilegs nýrs árs :) með því að kyssa mann á kynnina og faðma mann. Seinna voru nokkrir að bjóða okkur að koma í partý eða kíkja á klúbb sem hét Club Moma, það var kíkt þangað enn það var nú bara þrír þarna fyrir utan þjónanna og barþjóna, þannig við fórum út þaðan og röltuðum eitthvað síðan yfirgáfum ég og Linda hina þegar þó fóru heim til þess að sofa og við kíktum aftur á staðið moma club og voru ekki fleiri komnir og það var mjög gaman get ég sagt og skemmtum við okkur mjög vel. Ég get vonandi sýnt myndir seinna en ég var því miður ekki með myndavél en Linda var með þannig ég fæ líklegast að nota myndir hjá henni, vonandi.

 

-Keypt var fullt af einhverju dóti og drasli enn það var nú bara gaman enn ég held að ég er búin að nefna það helsta svona, ég er nú ekkert að fara neitt djúpt í smáatriðin þið fáið kannski að heyra það seinna eða þið eruð búin að heyra það =) enn allavega ég segji þetta nóg í bili, ég kveð að sinni.

 

-Bryndís

07. janúar 2007 klukkan 03:23
Bryndís Guðjónsdóttir
3 athugasemdir
08desember

Laaaangt síðan.

Ég held að það sé komin tími á að blogga hérna, hef ekki getað gert það því að talvan okkar í bænum er biluð og full af vírusum en núna er ég í hveragerði hjá henni múttu og svaf ég í dásamlegu rúmmi, það er 203 cm langt og 153 cmá breidd og hvað maður svaf vel, það var geggjað. Hér er ég að tjá ást mína við rúmmi mínu en allavega ég er byrjuð í prófum og er búin með 3 og á eftir 3 og það er líka komið á hreint að ég er með inngöngu í skólann aftur næsta önn guð sé lof og það mun ein manneskja líka ganga til liðs með okkur í FÁ og það er hún Erla Björk Einarsdóttir, hún er búin að segja mér það að hún hafi fengið inngöngu og mikið verður ógeðslega gaman að vera með henni í skóla, sjæsen :P
    Eftir 12 daga þann 20 desember er ég á leið til Las Palmas oho, of kúl. Ég mun hitta pabba þarna úti og svo náttlega sísíi líka en það er orðið svolítið langt síðan ég sá pabba síðast svona 3-4 mánuðir og ég get sagt að ég er farin að sakna hans og hlakka til að sjá hann um jólin. Mig langar að gera svo margt þarna úti váá ég er alveg bara brainstorming hérna mig langar að fara á jet ski, köfun, versla, synda í sjónum og svo margt margt fleira :D
    Jólaballið þann 14 desember Yeah bara einhvern þúsund kall út, vá hvað það á eftir að vera gaman og það má ekki vera leiðinlega ég ætla að skemmta mér!! og mér er alveg sama hvað ykkur finnst um það ég ÆTLA að skemmta mér and no one get in my way, or else hehe eða þið vitið hvað ég meina.

svona í tilnefni þess að ég er að fara út um jólin þá skell ég inn myndum frá las palmas hérna inná. =)
 
08. desember 2006 klukkan 21:55
Bryndís Guðjónsdóttir
4 athugasemdir
11nóvember

Eitt enn.

Jæja það kom að því að ég hef tekið mig til í það að blogga. Svolítð langt síðan ég gerði það síðast, enþað er dálítið sem ég vil deila með ykkur lesendum, í dag fór ég í klippingu ég ætlaði að verða rauðhærð enn svo fór ekki þetta er meira svona kastaníubrúnt einhvernveginn ekki það að þetta líti illa út alls ekki, bara vildi verða rauðhær. Annað líka í fréttum, ég er komin með Gleraugu, vúhú... Rauðhærður Gleraugnaglámur.
Þorglis Bróðir kom heim frá japan á fimmtudag fyrir viku og hann spurði mig hvað mig langaði frá japan ég sagði bara eitthvað freaky og skrítið, þá var ég svona eiginlega að tala um hlut frá japan og sem einkennir japan eða þannig en allavega hann kom með Goth föt hehe jakka, skirtu og pils. Það lítur samt ágætlega út sko :)
síðan í gær skrapp ég á 85 ball með henni Helgu minns =) En vildi bara svona láta vita af mér þannig þetta er komið gott =) =)

-Bryndís
 P.S Til hamingju með afmælið elsku besta Lindu systir :D:D:D *ást-ást-ást*


11. nóvember 2006 klukkan 06:16
Bryndís Guðjónsdóttir
6 athugasemdir
14október

Haust

Það er komin talsverður tími síðan ég bloggaði síðast. Ég var nú byrjuð hérna fyrir tvemur dögum minnir mig en síðan varð það þannig að tölvan varð svo ofboðslega frek og slökkti á sér. Ég varð pirruð því ég var akkúrat að klára færsluna en því miður gat ég ekkert af því gert. En jæja í fréttum er þetta helst; fólk vill ekki hætta að kvarta undan okkur Lindu og Halli og berast ýmsar lygasögur um okkur um allt hverfið, eitthvað sem far mjög mikið í skapið okkar.

En allavega ég er í hveragarði eins og er og er ein heima, magnús er á selfossi og gisti þar í nótt og svo á ég að sækja hann en því miður get ég  það ekki því að mamma er á bílnum og hún fór í sund þannig að greyið brósi er fastur á selfossi í smá tíma.

Veðrið hérna er hrikalegt og er alveg að fara með mann, rok og rigning en þá á sér sínar góðu hliðar líka... held ég en jæja þá, skemmtilegt að tala um veðrið hérna.

Ég skellti mér í smá stund á halloween/papa ballið á selfossi í gær það voru samt engir papar bara svörtum fötum, mér skilst að paparnir voru á players með tónleika, en ég var nú ekkert lengi kom svona 12 þangað og fann ekki magnús og þorgils hauk fyrr en svona hálf en var bara að hangsa þarna eitthvað áður. Ég þurfti að skutal Magnúsi á vistina í herbergið hans Þorgilsar því hann var orðin svo þreyttur og pirraður. en síðan fór maður aftur a ballið og var það svona ágætt en ég verð nú að segja að ég hef upplifað betri böll.

en ég held að þetta sé allt og sumt í bili allavega.

-Bryndís
14. október 2006 klukkan 18:05
Bryndís Guðjónsdóttir
8 athugasemdir
25september

Colgate

Jæja jæja jæja... Hingað til hef eg ekki gert neitt á listanum en þetta er allt að koma og er í vinslu.
Je m'appelle Bryndís það þýðir Ég heiti Bryndís.. jájá öss maður er orðin klár í frönskunni. Je suis islandais það þýðir ég er íslendingur, hehe ég kann nú eitthvað meira en fer nú ekki að segja það allt hérna á einu bloggi. Ég kann hinsvegar að telja svona nokkurnvegin uppá 69.

Ég er að kafna hérna *hóst*hóst* er að borða sterkan brjóstsykur *hóst* hann fór eitthvað vitlaust í mig. En jæja þá. Haust fríið nálgast, hvað á að gera? Ég veit hvað ég ætla að gera :D ójáá hvort ég veit.

Mánaðarmót nálgast einnig hratt og fer mér að hlakka til þess að sjá launaseðilinn. Ég ætla rétt að vona að þetta sé góð tala sem ég fæ.

Hendur mínar likta eins og ógéð, ég var sko að búa til Flubber í Nát 123 í dag semsagt lét ég borax og matarlímsplötu, hvíttlím, smá af grænum matarlit og vatn og hrærði því saman og út úr því kom klístraður flöbber sem við viljum láta kalla Páll :D En já hún Ragga fékk að taka hann með sér heim en hún var einmitt með í verkefninu og einhver annar strákur sem ég man ekki hvað hét. Allaveg ég hata stærðfræði. Ég er búin að setja nýy vikunar og er að pæla að eftir þessa blöggfærsli fer ég að gera nýja skoðannarkönnun. Hvernig leggst það í ykkur? EN jæja nenni ekki að röfla meir.. C yah

-Bryndís
25. september 2006 klukkan 21:56
Bryndís Guðjónsdóttir
10 athugasemdir
12september

Veturinn

Maður er komin svona rækilega afstað í skólanum og er nú farin að læra hema og stunda þetta nám nokkuð vel :)
Ég finn að veturinn sé að koma. Mér er farið að hlakka til að sjá hann =). Svo margt  sem mig langar að gera í vetur í snjónum... fara útí kuldan í úlpu og með húfu og vetlinga.. ahhh!
Og svo er maður búin að gefa sér smá markmið fyrir veturinn og ég vil fá að deila því hérna með ykkur.

°-Stunda námið í skólanum og taka mig vel á.
°-Hita vini nógu oft, þið vitið hverjir þið eruð... því ég var mjööög léleg í því í fyrra
°-Prófa ammælisgjöfina mína sem ég er ekki búin að nota ( snjóþota )
°-RISL!
°-Fara á skauta með Helgu, þótt ég kann ekki neitt! =)
°-Hlusta á tónlist [ bregst aldrei ;) ] kynna mér nýja tóna.
°-Vinna.
°-Vera duglegri með þessa síðu.
°-Kaupa mér bíl.
°-Læra alice in chains

Busaball Fá var semsagt á Fimmtudaginn og var það ekki bara gaman eða allavega partinn af ballinu. Fyrir partý var haldið heima hjá henni Helgu Fluffhh... og það var geggjað heima hjá henni og var ekki skellt sér í Twister. Mín var nú bara í öðrusæti og Kristján busi í fyrsta =Þ og ég var nú í háhæluðum skóm þannig það var ekkert skrítið að ég náði þessu ekkert, bara útaf því að ég átti að setja hægri fót á grænann! =)

Þetta var glæsilegt Partý og vill ég þakka Helgu kææærlega fyrir.
Svo á ballinu skemmtil Páll Óskarl okkur vel...! Þetta var snilldar ball en hvað ætti maður annars að búast frá Fjölbraut í Ármúla.
Hægt er að finna skemmtilega myndir á Pineapples síðunnu
www.blog.central.is/pineapples
Ég er að fara að skella mér á annað ball á morgun =) *vonandi* Það er borgó busaballið hlakka svo tiiiiil.

Ásgerður, ég verð að fara að hitta þig...! Ég er ekki búin að sjá þig í svona ÖLD og er farin að sakna þín. Okei?

En ég held að þetta sé komið nóg í bili. Bless í bili

-Bryndís

12. september 2006 klukkan 22:19
Bryndís Guðjónsdóttir
14 athugasemdir
30ágúst

hmm...?

Maður er búin að vera í skólanum á fullu alveg síðan hann byrjaði og það gengur bara ágætlega get ég nú bara sagt ykkur. Síðan er maður líka að vinna þannig það er doldið erfit að vera í vinnu með skóla en ég lifi það af... það er nú eiginlega bara búið að vera erfir núna þessa viku og verður út hana bíst ég við. Ég er búin að vera í vinnu síðan á sunnudag og fer síðan aftur í kvöld og svo næst bara um helgina, alla helgina. Get víst ekki gert neitt skemmtilegt um helgina þegar ég verð stödd í bænum. Ég vona bara að þetta á eftir að sjást vel á launaseðlinum =)

Hvernig er annars staðan hjá ykkur með skóla og vinnu? Eru þið ekki bara svakalega dugleg? Alveg á fullu í skólanum.

Veit ekki afhverju ég er að blogga þarsem ég hef nú eiginlega ekkert meira til þess að segja... ekkert slúður eða leiðinda sögur. Allavega ég skrifa þá bara eitthvað seinna. Bless bless

-Bryndís
30. ágúst 2006 klukkan 22:11
Bryndís Guðjónsdóttir
7 athugasemdir

Lag Vikunnar 9 - 15 Apríl

Kaiser Chiefs - Ruby

Auglýsing

Fögnuður Vikunnar

Páskafríið

Búú Vikunnar

páskafríið búið!

mynd vikunnar


Könnun

appelsína..?

Teljari

Innskráningar kubbur

Lag